Betra er að standa á eigin fótum en annarra...
Allt að skýrast...Karen Emilía Barrysdóttir Woodrow
Dagurinn í dag einkendist af miklum svefni! Komst á lappir eftir siestuna mína um 4 og dreif mig í bankan. Er að skipta yfir í Landsbankann, þeir eru svo almennilegir að þeir eru að græja allar tryggingar fyrir mig og ætla að sjá um öll fjármál fyrir mig á meðan ég er úti í samráði við mömmu:)Fékk tilkynningu frá pósthúsinu í dag um að þar biði mín ábyrgðarbréf....eflaust er þetta passinn minn sem er vonandi komin með visa fyrir Indland.
Nú er eina helst að bíða eftir svari frá fyrirtæki sem er með hestaferðir í Okavanga Delta í Botswana um hvort að það sé laust hjá þeim í lok október/byrjun nóvember.
Þegar ég rakst á heimasíðuna um þessa ferð fékk ég gæsahúð af spenningi og alveg viss um að þetta er hestaferðin sem ég ætla í...nú er bara að bíða eftir svari!
21 dagur í að ég legg í hann.... 3 VIKUR!!!!
úff.........
