Betra er að standa á eigin fótum en annarra...
Upprifjun 101...kafli 1Karen Emilía Barrysdóttir Woodrow
Nú er ég byrjuð að fara yfir myndirnar mína og hef verið að lesa gamlar blogg færslur hjá mér, og ótrulegustu hlutir sem ég mundi ekki eftir eru núna að rifjast upp:)Næstu blogg færslur hjá mér verða brot úr gömlum færslu (eitthvað lappað upp á þær kannski) og eitthvað meira skrifað með þeim og jafnvel einhverjar myndir!
Getur heitt orðið of heitt???
Allavega, hér í Dubai er 48° steikjandi hiti, en ekki raki, So I will survive. Ég kom mér yfir á Heathrow og það kom í ljós að það var smá seinkun á fluginu mínu - gerði ekkert til því að ég fékk mér bara salt og vinegar crisps og slappaði af og las bók. Flugvélin var æði - en núna þegar ég lít aftur yfir öll flugin mín þá var þetta flug ekkert mjög öðruvísi, allt er spennandi til að byrja með! -





Dubai var spes - dálítið lególand fyrir fullorðna. Fyrir 30 árum ekkert nema sandur en núna fullt af gróðri og háhýsum! Ein stór fjölskylda ræður öllu - engir skattar en öll þjónusta fyrir íbúa frí! Blanda af öllum heimsins trúarbrögðum (þótt meirihlutinn sé múslimar) og þjóðum - samt er Dubai ein öruggasta borg í heimi! Fólk lifir í sátt - ekkert vesen! Í gömlu færslunni stóð "engir fordómar, ekkert vesen" en það er ekki rétt.Mismunandi menningarlegur bakgrunnur getur of valdið árekstrum í samskiptum fólks. Hagsmunir og sýn fólks á hvernig lífið á að vera er ekki það sama og valda þá þessir árekstrar fordómum. Hvort svo sem það er vegna hræðslu við eitthvað sem það þekkir ekki eða skoðanir sem stangast á við þeirra eigin. Rétt eins og Reykvíkingar kölluðu landsbyggðarpakk eða sveitavarg, voru reykvíkingar kallaðir pakkið í Reykjavík. Þetta gersit á öðrum stöðum. Hvít fólk í Afríku finnst afríkubúar vera latir upp til hópa - en afríkubúar hafa líka fordóma gangvart hvítu manneskjunni. Þannig að hvort svo sem þú ert á íslandi eða í Afríku verða alltad einhverjir árekstrar. Fólk frá mismandi bakgrunn og með öðruvísi menninga arfleið. Ég á erfitt að koma þessu frá mér, þetta var allt svo auðvelt yfir nokkrum bjórum þegar maður sat í sólinni úti með samferðalöngum og leysti öll heimsins vandamál.
Þetta verður seint eða aldrei leyst. Fólk þarf að temja sér þann sið að sýna náunganum umburðalyndi og virðingu -óháð kyni, litarhætti, trúarbrögðum, stærð, aldri, kynhneigð og skoðunum.
Ég er á engan máta að reyna að segja hvað sé rétt eða rangt, einungis að gera heiðarlega tilraun til að leysa aðeins úr flókaboltanum í kollinum á mér - sem er búin flækjast um seinstu 11 mánuðina!
Knús,
Karen xxx
